AđalréttirSnjólaug María Jónsdóttir
Gott ađ snćđa á jólum... NánarMeđlćtiđ međ jólamatnumSnjólaug María Jónsdóttir
Heimagert međlćti og annađ gott međ matnum um hátíđarnar... NánarLagterturSnjólaug María Jónsdóttir
Fínar kökur á jólaborđiđ ţegar fjölskyldan og vinirnir koma í heimsókn... NánarEftirréttirSnjólaug María Jónsdóttir
Girnilegir eftirréttir á jólaborđiđ eđa í áramótaveisluna... NánarKonfekt 2. hlutiSnjólaug María Jónsdóttir
Hérna kemur meira af uppskriftum, endilega ef ţiđ lumiđ á girnilegum konfekt uppskriftum sendiđ mér ţćr ţá á uppskriftir@gmail.com... NánarKonfekt 1. hlutiSnjólaug María Jónsdóttir
Fullt af girnilegum jólakonfektsuppskriftum... NánarBeint frá bóndaSnjólaug María Jónsdóttir
Um að gera að kíkja á linkana hérna neðst hægra megin og nýta sér það að kaupa kjöt í miklu magni og þar af leiðandi ódýrara. Ef ekki að fara út í þetta einn en þá að fá fleiri úr fjölskyldunni eða vini með sér í það að kaupa skrokkKjúklingapottrétturSnjólaug María Jónsdóttir
InnihaldFyrir 6
1,75 kg Kjúklingur, hlutaður í 8-10 bita
paprikuduft
30 ml Ólífuolía
30 ml Smjör
450 gr Laukur, skorinn í bita
225 gr Paprika, flott að setja 2-3 liti
475 ml Tómatar í dós, teningar og safi
250 ml Hvítvín (gott vín til í Hagkaup)
475 ml Kjúklingasoð eða vatn
15 gr Fersk steinselja, söxuð
1/2 tsk Tabascosósa
1 msk Worcestershiresósa
350 gr Maískorn, niðursoðið
185 gr Smjörbaunir, ferskar eða frosnar
3 msk Hveiti
Salt og svartur pipar
Aðferðin
1. Þerrið kjúklingabitana og stráið salti, pipar og paprikudufti lauslega yfir þá.
2. Hitið ólífuolíu og smjör í potti yfir meðalhita. Hitið þar til blandan kraumar og er um það bil að skipta um lit.
3. Setjið kjúklingabitana út í og steikið þar til þeir eru gullinbrúnir á öllum hliðum. Takið bitana upp úr pottinum með töngum og setjið þá til hliðar.
4. Lækkið niður í vægan hita og bætið lauknum og paprikunni í pottinn. Eldið þar til er orðið mjúkt, í u.þ.b 8-10 mín.
5. Hækkið hitann á ný. Setjið tómata með safa í pottinn og bætið hvítvíni, kjúklingasoði eða vatni, steinselju, tabascosósu og worcestershiresósu í. Hrærið í og látið suðuna koma upp.
6. Bætið kjúklingabitunum aftur í og þrýstið þeim ofan í sósuna. Setjið lokið á, lækkið hitann og látið krauma í 30 mín. Hrærið í öðru hverju.
7. Bætið maískorni, smjöri og baunum í og blandið vel. Leggið lokið á til hálfs og eldið í 30 mín til viðbótar.
8. Hallið pottinum og veiðið eins mikið af yfirborðsfitu af og hægt er. Blandið hveiti og örlitlu vatni saman í litla skál svo að úr verði deig eða þykkni.
9. Hellið örlitlu af sósunni út í hveitiþykknið. Hellið blöndunni út í pottréttinn og blandið vel saman uns er orðið jafnt og þykkt. Eldið í 5-8 mín til viðbótar og hrærið í öðru hverju.
10. Smakkið til og saltið og piprið eftir smekk. Berið pottréttinn fram í súpuskálum. Gott er að hafa með þessu hrísgrjón, brauð eða kartöflur.
Verði ykkur að góðu
Snjólaug
Uppskriftin er fengin úr bókinni Kjúklingaréttir
